Kæru viðskiptavinir,
Eins og þið vitið hafa verið formúlu breytingar á ýmsum naglavörum innan Evrópu eftir TPO bann Evrópusambandsins tók gildi í haust. Þessum breytingum getur fylgt smá aðlögunartími. Crystal Nails þróunar teymið er meðvitað um óþægindin sem þetta getur valdið og er að vinna í frekari lausnum til þess að tryggja bestu mögulegu gæði þrátt fyrir laga breytingarnar.
Ef þið eruð í vandræðum með endingartíma eða lyftingu á efninu eftir formúlubreytingarnar þá erum við með lausn til þess að laga það á meðan unnið er að frekari formúlu breytingum.
Undirbúningurinn er alltaf mikilvægur þegar kemur a endingu naglaásetninga og við mælum með að skoða hann einstaklega vel og bæta einu skrefi við “preppið” á meðan unnið er að frekari lausnum og það er að nota bæði Primer og Acid Free primer. Einnig hefur reynst okkur vel að nota SENS base gelið eða Fiberflow hardener í staðinn fyrir Builder base.
Hér fyrir neðan er mynd af “preppinu” eins og við mælum með að hafa það á meðan á þessu stendur
Afsakið óþægindin sem þetta gæti hafa valdið og takk fyrir skilninginn,
Luxa